Komudagur:
Fjöldi gistinátta:
Fjöldi í herbergi:
Fullorðnir :
Yngri en 12 ára :
IATA númer:
   

Golfvellir eru í námunda við Fosshótel

Gisting og golf hjá FosshótelumFosshótelin eru í námunda við marga skemmtilega golfvelli. Það er upplagt að gista hjá okkur, borða góðan morgunverð og nota svo daginn í að spila golf á fallegum völlum.

Við getum bókað vallartíma á hótelunum og einnig er hægt að ganga frá greiðslu á hótelunum fyrir marga af völlunum.
Upplagt er að nýta sér sumartilboð Fosshótela og gista í 1 til 4 nætur á einhverju af hótelunum okkar og nýta dagana í að spila golf og njóta lífsins.

Hér er listi yfir golfvelli og upplýsingar nokkra þeirra.


Fyrst ber að nefna Reykjavíkurhótelin okkar og þá velli sem eru þar í kring.


Fosshótel Lind - Fosshótel Baron - Fosshótel Suðurgata - Garður Inn (Reykjavík) Grafarholtsvöllur, Korpúlfsstaðavöllur, Upplýsingar í síma 585 0200.

Þar er veittur 20 % afsláttur ef bókaðir eru vallartímar fyrir kl 14.00 á daginn. Upplýsingar í síma 585 0200.

Einnig má nefna eftirfarandi velli á höfuðborgarsvæðinu:
Nesvöllur í Reykjavík, upplýsingar í síma: 561 1930.
Vífilstaðavöllur og Leirdalsvöllur í Garðabæ, upplýsingar í síma: 565 7373.
Urriðavatnsvöllur Garðabæ, upplýsingar í síma 565 9074.
Setbergsvöllur á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Upplýsingar í síma 565 9094.
Hvaleyrarvöllur í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 565 3360.
Bakkakostsvöllur í Mosfellsbæ. Upplýsingar í síma 566 8480
Hlíðavöllur í Mosfellsbæ. Upplýsingar í síma 566 7415.

 

Fosshótel Reykholt

Reykholtsdalsvöllur í Nesi í Reykholtsdal.
Þetta er nýr 9 holu völlur og aðeins í 2 km fjarlægð frá Fosshótel Reykholti. Opið er frá 10:00-22:00 daglega, svo er opið lengur ef veðrið er gott. Einn hringur fyrir manninn er 1500 kr. Daggjaldið er 2500 kr. Hægt er að leigja golfsett á 1500 kr.
Upplýsingar í síma 435-1472.

Hamarsvöllur Borgarnesi.
Þetta er 18 holu völlur og er hann í um 35 km fjarlægð frá Fosshótel Reykholti. Þar kostar 5.000 krónur fyrir parið að spila einn hring.
Upplýsingar í síma 437 2000.

Golfvöllurinn á Húsafelli.
Golfvöllurinn á Húsafelli er 9 holu völlur og er hann í um 20 mínútna fjarlægð frá Fosshótel Reykholti. Daggjald fyrir fullorðna er 2500 kr og sérstakt hjónagjald er 4000 kr.
Börn yngri en 14 ára greiða 1200 kr.
Upplýsingar í síma 863 1554.


Fosshótel Laugar

Krossdalsvöllur í Mývatnssveit.
Þetta er 9 holu völlur. Gjaldið er 1500 kr fyrir 16 ára og eldri, 2500 kr fyrir hjón og 500 kr fyrir 12-15 ára. Ótakmarkað golf yfir daginn.
Upplýsingar í síma 856 1159.

Jaðarsvöllur, Akureyri.
Jaðarsvöllurinn er 18 holu völlur. Almennt gjald 3500, helgargjald 4500, yngri en 17 ára 1500, hjónagjald 5900, hjónagjald helgar 6900 kr.
Leiga á golfsetti 1500 kr, og kerru 500 kr,. Einnig er hægt að leigja golfbíl 3500 kr.
Upplýsingar í síma síma 462 2974.


Fosshótel Húsavík

Katlavöllur á Húsavík.
Katlavöllur er 9 holu völlur og staðsettur rétt sunnan við Húsavík. Í gegnum völlinn rennur Þorvaldstaðará sem hefur áhrif á 5 holur á vellinum. Stórbrotið landslag, grjótmelar og lyng eru einkennismerki.
Hjónagjald er 4000 kr. og einstaklingar greiða 2500 kr.
9 holur 1800 kr fyrir einstaklinga og 2900 kr. fyrir hjón.
Kylfuleiga 1500 kr og kerruleiga 500 kr
6 holu æfingavöllur er opin alla daga og aðgangur gjaldfrjáls. Upplýsingar í síma 464 1000.

Opin mót á Húsavík í sumar eru
27. júní er Opna Skóbúðarmótið – Punktakeppni
4. júlí er Opna kvennamót Lyfju – Punktakeppni
19.júlí er Opna Öryggismótið – Texas Scramble
25. júlí er Opna Húsavíkurmótið – Höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf
16.ágúst er GPG Open – Höggleikur með og án forgjafar.

Fosshótel Vatnajökull

Silfurnesvöllur á Höfn.
9 holu völlur, upplýsingar í síma 478 2197.


Fosshótel Mosfell (Hella)

Strandarvöllurinn

Strandarvöllurinn við Hellu er 18 holur og er staðsettur mitt á milli Hellu og Hvolsvallar.
Samkvæmt samningi milli GHR og GR geta félagar í GR leikið endurgjaldslaust á Strandarvelli gegn því að rita nafn sitt í sérstaka gestabók og sýna gilt meðlimakort
Vallargjöld fyrir einstakling er 3000 kr, hjónagjald er 4100 kr, fyrir yngri en 16 ára þarf aðeins að borga hálft gjald.
Ekki er um að ræða afslátt frá vallargjöldum fyrir par nema um hjón eða sambúðarfólk sé að ræða.
Hálft golfsett ( ca. 6-7 kylfur ) kostar 1500 kr + 1000 kr. skilatrygging, heilt sett kostar 2500 kr. + 1000 kr. skilatrygging.
Golfbíll kostar 3500 kr. + 1500 kr. lyklatrygging ( fæst endurgreitt, þegar bíl er skilað). Upplýsingar í síma 487 8208.

Hellishólar – Þverárvöllur - Fljótshlíð.
Á Hellishólum er glæsilegur 9 holu golfvöllur sem árnar Þverá og Grjótá renna í gegnum. Þverárvöllur er krefjandi og skemmtilegur, umkringdur glæsilegri náttúru.
Upplýsingar í síma 487 8360.

Svarfhólsvöllur Selfossi, upplýsingar í síma 482 2417.


 

Þú ert hér: Forsíða > Ferðahugmyndir > Golfvellir við Fosshótel

FOSSHÓTEL · SIGTÚN 38 · 105 REYKJAVÍK · ÍSLAND · TEL +354 562 4000 · FAX +354 562 4001 · EMAIL: bokun@fosshotel.is