FOSSHÓTEL - Vinalegri um allt land

Fosshótel státar af 9 hótelum hringinn í kringum landið, í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Fosshótel leggur metnað sinn í að skapa vinalegt og afslappað andrúmsloft ásamt því að bjóða upp á fjölbreytta og góða þjónustu.

Landið okkar er vel þekkt fyrir stórbrotið landslag og einstaka náttúru. Allar árstíðir hafa sitt einkenni og sinn sjarma.

Fosshótelin 9 eru ýmist heilsárshótel eða sumarhótel. Tvö Fosshótel eru í miðbæ Reykjavíkur, Lind og Baron. Fosshótelin bjóða öll upp á gistingu í upp á búnum rúmum í herbergjum með baði og er morgunverður alltaf innifalinn. Nokkur hótel bjóða upp á herbergi án baðs. Öll Fosshótelin eru reyklaus hótel og boðið er upp á þráðlaust net á hverju hóteli.

Hótelin í keðjunni bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta matseðla. Lögð er rík áhersla á að vinna með ferskt hráefni úr sveitun landsins og sjónum í nágrenni hótelanna. Unnið er með bændum og mikið af hráefni keypt beint frá býli.

Fosshótel leggja metnað sinn í að skapa vinalegt andrúmsloft og lögð er áhersla á að veita hverjum gesti afbragðs þjónustu. Við hlökkum til að taka á móti þér!


View Fosshotels all around Iceland in a larger map

INSPIRED BY ICELAND