Fosshótel Baron

Barónsstígur 2-4 (við Skúlagötu), 101 Reykjavík
Sími 562 3204, Fax 552 4425

Þriggja stjörnu hótel í hjarta Reykjavíkur

Fosshótel Baron er 3ja stjörnu hótel sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur, aðeins örfáum skrefum frá Laugaveginum og hinum skemmtilega göngustíg sem liggur meðfram sjónum.

Fosshótel Baron býður uppá fjölbreytta gistimöguleika:

Baron herbergi (16-18 m²) eru 21 að tölu, nýuppgerð, falleg og notaleg herbergi undir súð með þakglugga.

Eins og tveggja manna herbergin (18-22 m²) eru 66 að tölu, nýuppgerð og bjóða gestum þægilega aðstöðu með góðu útsýni yfir borgina eða til sjávar.

Fyrir gesti í viðskiptaerindum standa þrjár glæsilegar svítur til boða. Svítan samanstendur af svefnherbergi og sér fundarstofu.

31 stúdíó íbúðir og íbúðir. Það eru átta íbúðir með einu svefnherbergi og sex íbúðir með tveimur svefnherbergjum. Allar íbúðirnar eru með eldhúsaðstöðu og eru tilvalin fyrir fjölskyldur, langtímagistingu og gesti sem vilja nóg pláss.
Samtals eru 121 herbergi, studio og íbúðir, öll með sturtu/WC, síma og sjónvarpi. Á Fosshóteli Baron er morgunverðarsalur, lyfta, frír internetaðgangur í móttöku og frítt bílastæði. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.

Lystin er lítll en nýtískulegur veitingastaður á Laugavegi 73, rétt hjá Fosshótel Baron. Veitingastaðurinn sérhæfir sig í íslenskri fusion matargerð, árstíðabundinni matargerð sem kitlar bragðlaukana. Hér má skoða matseðilinn á Lystinni. Hótelgestir fá 10% afslátt af matseðlinum ef þeir panta borð í gegnum móttöku hótelsins.

NÝTT Á FOSSHÓTEL BARON

Boðið er upp á heita súpu og nýbakað brauð á hverjum degi frá kl 17:00 - 23:00 á hótel barnum. Tilvalið fyrir þá sem vilja fá sér eitthvað létt í matinn. Verð einungis 850 kr á mann.

Umhverfið

Í Reykjavík er að finna aragrúa safna, veitingahúsa, leikhúsa og iðandi næturlíf. Menning af öllum toga er í seilingarfjarlægð frá Fosshóteli Baron. Stutt er í verslanir á Laugarveginum og þegar pokarnir fyllast er ekkert mál að skutla þeim inn á hótelherbergi og halda svo áfram að versla.

Hver hefur ekki gaman af að gleðja börnin og rækta barnið í sjálfum sér? Heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðin, að Reykjavíkurtjörn og í Nauthólsvík er uppskrift að skemmtilegum degi fyrir alla. Á Fosshóteli Baron eru fjölskylduherbergi í boði.

Fyrir þá sem þurfa á fund eða ráðstefnu og vilja nota tímann vel eru Fosshótelin í Reykjavík góður kostur. Helstu viðskipta- og fjármálafyrirtæki landsins eru í nálægð við Fosshótel Baron, svo ekki þarf að eyða dýrmætum tíma í umferðinni.

Það er líka hægt að slaka á í Reykjavík. Gestir geta látið fara vel um sig inni á notalegum hótelherbergjum, rölt á veitingastað eða kaffihús og horft á fjölbreytilegt og litríkt mannlíf blómstra.

INSPIRED BY ICELAND