Fosshótel Dalvík
Fosshótel Dalvík er þægilegt ferðamannahótel á fallegum stað á Dalvík við Eyjafjörð. Á hótelinu eru 26 herbergi með baðherbergi, sjónvarpi, síma og útsýni yfir nálæg fjöll og firði. Auk þess eru 7 herbergi með sameiginlegri sturtu- og salernisaðstöðu auk aðgengi að eldhúsi.
Móttakan er afar notaleg og þar er að finna sjónvarpshorn, bar og internet aðstöðu. Stórt morgunverðarrými er á hótelinu sem einnig er hægt að nota sem sal fyrir hópa og ráðstefnur. Öll herbergi, bar og morgunverðarsalur eru reyklaus svæði.
- Morgunverður innifalinn
- Bar
- Fundaraðstaða
- Þráðlaust net
- Lyfta
- Opið maí-september
- Takmörkuð starfsemi á veturna















