Fosshótel Húsavík
Gistu í hjarta Húsavíkur
Fosshótel Húsavík er þriggja stjörnu vinalegt og vel útbúið ferðamannahótel í hjarta Húsavíkur. Stutt er niður á höfn, í búðir og í sundlaugina frá hótelinu.
Samtals eru 70 herbergi á hótelinu. Við bjóðum upp á 44 standard herbergi með sturtu/WC, 26 superior herbergi sem eru innréttuð í sérstökum hvala og sjávarþema með sturtu/WC. Öll herbergi eru með sjónvarpi, síma og útvarpi.
Einnig er að finna veitingastaðinn Teríuna og barinn Moby Dick.
Hótelið býður upp á ráðstefnu- og veislu aðstöðu fyrir allt að 300 manns.
Aðstaða er fyrir fólk í hjólastól á nokkrum herbergjum og lyfta er á hótelinu.
Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Hvala þema í hvalaskoðunar höfuðborg norðursins
Mikið af innréttingum hótelsins eru byggðar á hvalaþema sem er í formi mynda, málverka, skúlptúra og stóru safni hvalafrímerkja. Barinn nefnist Moby Dick Pub og byggist á hinni frægu sögu um hvíta hvalinn Moby Dick. Þar er að finna sér hönnuð húsgögn, svo sem hvala-barstóla og árabáta-borð. Moby Dick Pub er vinsæll til kokteilboða og einnig er boðið upp á mismunandi tónlistarþemakvöld.
Fjölbreytileg afþreying í Húsavík
Húsavík er heillandi bær. Við hann og í næsta nágrenni er ýmis afþreying í boði. Í bænum fyrirfinnast meðal annars góðir veitingastaðir, verslanir, söfn og sundlaug. Hægt er að fara í golf, á kajak, í útreiðar- og göngutúra eða veiðiferðir og þegar vetrar á skíði eða í snjósleðaferðir, svo eitthvað sé nefnt. Á Húsavík er að finna hvalasafn sem skartar sýningu sem er alhliða fræðsla um hafstrauma, lífríki sjávar og líffræði hvalanna.
Húsavík stendur við Skjálfandaflóa og þess má geta að betri aðstæður til hvalaskoðunar eru vandfundnar. Það er því ekki að ástæðulausu að á síðustu árum hefur bænum áskotnast viðurnefnið "höfuðborg hvalaskoðunar í Evrópu". Frá Húsavík er upplagt að leggja í dagsferðir til Mývatns, að Dettifossi eða í Ásbyrgi.
Sjáðu það í 360° sýningu
Fosshótel Húsavík
Ketilsbraut 22, 640 Húsavík
Sími 464 1220, Fax 464 2161
Moby Dick Pub: Sími 464 1003






