Fosshótel Laugar
641 Húsavík
Sími 464 6300, Fax 562 4001
Gisting á Laugum í Reykjadal
Fosshótel Laugar er stærsta hótelið á Norðausturlandi. Þar eru 50 herbergi með baði og síma og svefnpokapláss. Einnig er á hótelinu veitingastaður, bar, tveir morgunverðarsalir og innisundlaug. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði. Opið er í móttökunni allan sólarhringinn og hægt er að fá aðgang að interneti. Fosshótel Laugar er notalegt 2/3 stjörnu ferðamannahótel, opið á sumrin. Á veturna er hluti hótelsins nýtt undir heimavist Framhaldsskólans á Laugum.
Umhverfi Lauga í Reykjadal
Frá Laugum eru 60 km til Akureyrar, 40 km til Húsavíkur og 30 km á Mývatn. Fosshótel Laugar er góður kostur fyrir þá sem sækjast eftir rólegu umhverfi í fagurri sveit þegar velja á dvalarstað til ferða um Norðausturland. Frá Laugum er hentugt að leggja upp í dagsferðir til margra af helstu náttúruperlum Norðausturlands, svo sem Mývatns, Ásbyrgis og að Dettifossi. Laugar eru einnig í næsta nágrenni við hina rómuðu Laxá í Aðaldal.


