Fosshótel Lind
Notalegt hótel í nágrenni við Laugaveginn
Fosshótel Lind er notalegt þriggja stjörnu ferðamannahótel. Staðsetning hótelsins er afbragð en það er nálægt Hlemmi og Laugavegi. Miðbæjarmenningin mætir gestum þess, nánast við útidyrnar. Stutt er í verslanir, veitingahús og söfn á borð við Listasafn Reykjavíkur og Kjarvalsstaði. Hótelið er sívinsælt meðal ferðamanna, hvort sem þeir koma sér til hvíldar og skemmtunar eða í viðskiptaerindum.
Á Fosshóteli Lind eru eftirfarandi tegundir gistingar í boði:
Það eru 77 standard herbergi sem eru með sturtu/WC, flatskjársjónvarpi með innbyggðum DVD spilara, útvarpi og síma. Öryggishólf eru í sumum herbergjunum, en einnig í móttöku.
Á hótelinu er svíta sem er mjög rúmgóð og þar er þægilegur sófi, svalir og baðkar fyrir fullkomna afslöppun eftir daginn. Svítan er tilvalin fyrir brúðhjón eða þá sem vilja aðeins meiri lúxus á sanngjörnu verði.
Glæsilegur morgunverðarsalur er á hótelinu. Internet aðgangur er í móttökunni, lyfta og frí bílastæði. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
ConFusion Veitingastaður
Veitingastaðinn ConFusion er að finna á Fosshótel Lind. Maturinn er byggður á "fusion" smáréttum. Skemmtilegur kokteillisti gerir upplifunina enn skemmtilegri. Nánari upplýsingar um staðinn er að finna á heimasíðu hans.
Umhverfið
Í Reykjavík er að finna aragrúa safna, veitingahúsa, leikhúsa og iðandi næturlíf. Menning af öllum toga er í seilingarfjarlægð frá Fosshótel Lind. Stutt er í verslanir á Laugarveginum og þegar pokarnir fyllast er ekkert mál að skutla þeim inn á hótelherbergi og halda svo áfram að versla.
Hver hefur ekki gaman af að gleðja börnin og rækta barnið í sjálfum sér? Heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðin, að Reykjavíkurtjörn og í Nauthólsvík er uppskrift að skemmtilegum degi fyrir alla.
Fyrir þá sem þurfa á fund eða ráðstefnu og vilja nota tímann vel eru Fosshótelin í Reykjavík góður kostur. Helstu viðskipta- og fjármálafyrirtæki landsins eru í nálægð við Fosshótel Lind, svo ekki þarf að eyða dýrmætum tíma í umferðinni.
Það er líka hægt að slaka á í Reykjavík. Gestir geta látið fara vel um sig inni á notalegum hótelherbergjum, rölt á veitingastað eða kaffihús og horft á fjölbreytilegt og litríkt mannlíf blómstra.
Fosshótel Lind
Rauðarárstígur 18, 105 Reykjavík
Sími 562 3350, Fax 562 3351










