Fosshótel Mosfell
Þrúðvangur 6, 850 Hella
Phone (+354) 487 5828, Fax (+354) 562 4001
Hótelgisting á Hellu
Fosshótel Mosfell er 2/3 stjörnu ferðamannahótel með 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs. Einnig er þar morgunverðarsalur, setu- og sjónvarpsstofa, aðgangur að interneti og ráðstefnusalur sem hentar mjög vel fyrir minni fundi, fyrirlestra og myndbandssýningar. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Umhverfi Mosfells
Frá Hellu er upplagt að skipuleggja dagsferðir í Þórsmörk, Landmannalaugar og Þjórsárdal, að Heklu, Gullfossi og Geysi, til Þingvalla og Vestmannaeyja, svo einhverjir staðir séu nefndir. Að dvelja 3-5 nætur á Fosshóteli Mosfelli veitir því ferðamönnum sem vilja kynnast Suðurlandi forskot á sæluna því mikill tími og akstur sparast ef miðað er við Reykjavíkurdvöl til sömu erinda.


