Fosshótel Reykholt
Heilsusetur og ráðstefnuhótel
Fosshótel Reykholt er þriggja stjörnu hótel með menningartengdum þema. Hótel er tilvalið fyrir gesti sem vilja slaka á í sveitasælunni og bæta við þekkingu sína á íslenskum menningararfi.
Á hótelinu er veitingastaðurinn Ásgarður, barinn Urðarbrunnur, bókastofa, heitir pottar og heilsugangur. Einnig bjóðum við upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir ráðstefnur, fundi og aðrar uppákomur.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Reykholti:
Hótelið hefur samtals 53 herbergi og nokkrar gerðir sem hægt er að velja um. Við bjóðum upp á 29 standard herbergi með sturtu/WC, 24 superior "Wellness" herbergi með baðkari og WC. Einnig erum við með nokkur fjölskylduherbergi.
Sérstaða hótelsins er heilsusetrið sem byggist á afslöppun og endurnæringu á líkama og sál. Vegleg ráðstefnuaðstaða er í boði fyrir allt að 150 manns. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Umhverfi Reykholts
Á árunum 1206 – 1241 bjó Snorri Sturluson í Reykholti. Óhætt er að fullyrða að Snorra sé oftast minnst sem eins mesta fræðimanns og skálds Íslandssögunnar. Reykholt er vel þess virði að sækja heim. Þar má sjá merkar fornminjar sem tengjast búsetu Snorra Sturlusonar, til dæmis Snorralaug og Snorragöng. Fyrir framan hinn gamla héraðsskóla sem Guðjón Samúelsson, fyrrverandi húsameistari ríkissins, teiknaði stendur stytta af Snorra eftir hinn merka, norska listamann Gustav Vigeland. Í Reykholti eru tvær kirkjur, mismunandi í aldri og útliti. Innan veggja þeirrar yngri er starfrækt Snorrastofa, rannsóknarstofnun í miðaldarfræðum sem hefur meðal annars umsjón með sýningum sem settar eru upp og annast tónleikahald í Reykholtskirkju og Reykholtshátíð. Að auki stendur Þjóðminjasafn Íslands fyrir fornleifarannsóknum á svæðinu. Skammt er frá Reykholti að helstu náttúruperlum Borgarfjarðar og ber þá helst að nefna Barnafoss og Hraunfossa að ógleymdum Deildartunguhver, aflmesta hver í Evrópu. Stutt er í Húsafell, (um 30 mínútna akstur) en þar er hægt að nýta sér sundlaug, golfaðstöðu, leikvöll og einnig er boðið upp á hestaferðir. Í Borgarnesi eru menningartengd svæði svo sem Landnámssetrið. Hvanneyri er í um 20 akstursfjarlægð frá Reykholti en þar er starfræktur Landbúnaðarháskóli Íslands ásamt Búvélasafni Íslands.
Fosshotel Reykholt
320 Reyholt
Sími 435 1260, Fax 435 1206







