Fosshótel Skaftafell
Við rætur þjóðgarðsins í Skaftafelli
Fosshótel Skaftafell er huggulegt þriggja stjörnu ferðamannahótel á einum af fallegustu stöðum Íslands.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Skaftafelli:
63 einföld en góð hótelherbergi með sturtu/salerni, sjónvarpi og síma.
Öll herbergin eru á jarðhæð í fjórum mismunandi byggingum með stórkostlegu jöklaútsýni.
Veitingastaðurinn tekur 90-100 manns í sæti og er honum skipt í tvennt. Annað rýmið er tilvalið fyrir hópa á meðan hitt rýmið býður upp á meiri ró og næði fyrir einstaklinga.
Hótelið er mjög vinsælt fyrir hádegisverðarhópa og á sumrin bjóðum við uppá heilsusamleg salöt, súpur og fiskihlaðborð. Á annarri hæð hótelsins er bar en þar er stórfenglegt útsýni yfir Vatnajökul.
Á hótelinu er góð aðstaða til funda, námskeiðs- og ráðstefnuhalds. Ráðstefnusalurinn hýsir allt að 60 manns fyrir ráðstefnur og einkasamkvæmi.
Í móttökunni er sjónvarp og setustofa, aðgangur að interneti og lítil gjafavöruverslun. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Umhverfi Skaftafells
Fosshótel Skaftafell er umvafið jöklum með töfrandi útsýni yfir Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands. Náttúran og landslagið umhverfis hótelið er stórbrotið og einstakt. Hótelið sem er við hringveginn, er í um 330 km frá Reykjavík, er mikil paradís fyrir náttúruunnendur.
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli er 4 km í vestur en hann skartar víðáttumiklum skógi sem hefur varðveist frá örófi alda. Upplagt er að fara í gönguferðir um Skaftafell og jöklaleiðangur, svo ekki sé minnst á hina fjölmörgu fossa sem þar er að finna. Jökulsárlón er aðeins um 57 km austur af Fosshótel Skaftafelli og er þekkt fyrir gríðarstóra ísjaka sem fljóta um himinblátt lónið. Einnig leigir Fosshótel Skaftafell út fjallahjól og göngustafi.
Á bak við Fosshótel Skaftafell rísa margir af hæstu og glæsilegustu jökultindum landsins. Fyrir framan hótelið blasa við sandbreiður meðfram sjónum svo langt sem augað eygir.
Fosshótel Skaftafell býður upp á bestu staðsetninguna með besta útsýnið! Jöklar, fjöll og þjóðgarður! Það gerist ekki mikið betra en þetta.
Langar þig til þess að ganga á Hvannadalshnúk?
Fosshótel Skaftafell er tilvalinn áningastaður áður en haldið er á Hvannadalshnúk. Við mælum með því að hafa reynda fjallaleiðsögumenn til aðstoðar. Fosshótel Skaftafell er með sértilboð fyrir náttúruunnendur sem ætla sér að komast á hæsta tind landsins.
Eftirfarandi afþreying er í boði í Þjóðgarðinum í Skaftafelli á sumrin:
- Gönguferð undir leiðsögn um Þjóðgarðinn í Skaftafelli
- Ferðir undir leiðsögn um Ingólfshöfða sem er þéttsetinn fugli, einkum lunda.
- Útsýnisflug
- Ísklifur
Fosshótel Skaftafell
Freysnesi - 785 Öræfum
Sími: 478 1945, Fax: 478 1846







