Fosshótel Vatnajökull
781 Hornafjörður
Sími 478 2555, Fax 562 4001
Í ríki Vatnajökuls
Fosshótel Vatnajökull er vinsælt og notalegt ferðamannahótel. Þar er að finna sjónvarpsstofu, bar og veitingastað með útsýni yfir jökulinn þar sem gott er að slaka á eftir ævintýri dagsins. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Vatnajökli:
26 herbergi með baði, sjónvarpi og síma.
Herbergi með jökla-útsýni.
Þess má til gamans geta að hótelið hefur átt vinsældum að fagna meðal kvikmyndagerðamanna og leikara og varð það fyrir valinu við gerð mynda á borð við Tomb Raider og Die Another Day.
Afþreyging í nágrenni við Vatnajökul
Vatnajökull, stærsti jökull í Evrópu (8,456 m2), er í næsta nágrenni við Fosshótel Vatnajökul sem staðsett er um 10 km frá Höfn. Þegar kemur að afþreyingu á Höfn og í nágrenni bæjarins ber helst að nefna sela- og fuglaskoðun, veiði, hesta, fjöru- og gönguferðir og jeppaferðir á jökul. Athyglisverð sýning, s.k. Ís-land Jöklasýning á Höfn er opin allt árið. Á sýningunni er margvísleg fræðsla um náttúruna og jökla miðlað á fjölbreytilegan hátt. Frá Fosshóteli Vatnajökli er heppilegt að leggja upp í dagsferðir að Jökulsárlóni og í þjóðgarðinn Skaftafell.


