Komudagur:
Fjöldi gistinátta:
Fjöldi í herbergi:
Fullorðnir :
Yngri en 12 ára :
IATA númer:
 
Stjörnugjöf Ferðamálastofu

Fosshótel Baron

Barónsstígur 2-4 (við Skúlagötu), 101 Reykjavík
Sími 562 3204, Fax 552 4425

Myndasafn

Þriggja stjörnu hótel í hjarta Reykjavíkur

Fosshótel Baron er 3ja stjörnu hótel sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur, aðeins örfáum skrefum frá Laugaveginum og hinum skemmtilega göngustíg sem liggur meðfram sjónum.

Fosshótel Baron býður uppá fjölbreytta gistimöguleika:

Samtals eru 121 herbergi, studio og íbúðir, öll með sturtu/WC, síma og sjónvarpi. Á Fosshóteli Baron er morgunverðarsalur, lyfta, frír internetaðgangur í móttöku og frítt bílastæði. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.

Lystin er lítll en nýtískulegur veitingastaður á Laugavegi 73, rétt hjá Fosshótel Baron. Veitingastaðurinn sérhæfir sig í íslenskri fusion matargerð, árstíðabundinni matargerð sem kitlar bragðlaukana. Hér má skoða matseðilinn á Lystinni. Hótelgestir fá 10% afslátt af matseðlinum ef þeir panta borð í gegnum móttöku hótelsins.

 

Umhverfið

Í Reykjavík er að finna aragrúa safna, veitingahúsa, leikhúsa og iðandi næturlíf. Menning af öllum toga er í seilingarfjarlægð frá Fosshóteli Baron. Stutt er í verslanir á Laugarveginum og þegar pokarnir fyllast er ekkert mál að skutla þeim inn á hótelherbergi og halda svo áfram að versla.

Hver hefur ekki gaman af að gleðja börnin og rækta barnið í sjálfum sér? Heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðin, að Reykjavíkurtjörn og í Nauthólsvík er uppskrift að skemmtilegum degi fyrir alla. Á Fosshóteli Baron eru fjölskylduherbergi í boði.

Fyrir þá sem þurfa á fund eða ráðstefnu og vilja nota tímann vel eru Fosshótelin í Reykjavík góður kostur. Helstu viðskipta- og fjármálafyrirtæki landsins eru í nálægð við Fosshótel Baron, svo ekki þarf að eyða dýrmætum tíma í umferðinni.

Það er líka hægt að slaka á í Reykjavík. Gestir geta látið fara vel um sig inni á notalegum hótelherbergjum, rölt á veitingastað eða kaffihús og horft á fjölbreytilegt og litríkt mannlíf blómstra.

 

Athugaðu verðið fyrir Fosshótel Baron.
Bóka

Sendu starfsfólki Fosshótela tölvupóst varðandi frekari upplýsingar um Fosshótel Baron .

 

Þú ert hér: Forsíða > Fosshótel Baron

FOSSHÓTEL · SIGTÚN 38 · 105 REYKJAVÍK · ÍSLAND · TEL +354 562 4000 · FAX +354 562 4001 · EMAIL: bokun@fosshotel.is