Dalvík er staðsett á vesturhluta Eyjafjarðar sem er um 30 mínútna akstur frá Akueyri. Áætlunarferðir með ferju eru farnar frá Dalvík út í Grímsey og tekur siglingin um 3 klukkustundir. Grímsey er nyrsta eyja okkar Íslendinga og ein þeirra minni sem í byggð eru. Á henni hvílir mikill ævintýraljómi, því um hana þvera liggur heimskautsbaugur. Einnig eru reglulegar áætlunaferðir frá Dalvík út í Hrísey, en eyjan er í miðjum firðinum og þekkt sem “gimsteinn Eyjarfjarðar”.
Byggðarsafnið Hvoll á Dalvík er alveg einstakt. Hluti þess er byggðarsafn þar sem geymdir eru gamlir og sögulegir munir sem segja sögu af horfnum tímum, gleymdum verkháttum og sögu byggðarinnar. Hvoll hýsir einnig skemmtilegt og sérstakt náttúrugripasafn. Þar vekur jafnan mesta athygli ísbjörninn stóri sem stendur ógnandi yfir nýveiddum selkóp. Fjöldi annarra uppsettra spendýra, fiska og fugla er þar að finna og einnig eggjasafn, skeljasafn, grasasafn og ágætt steinasafn. Eitt herbergi safnsins hefur meira aðdráttarafl en aðrir hlutir þess. Það hefur að geyma muni og minjar í eigu Jóhanns Péturssonar Svarfdælings. Jóhann var hæstur allra Íslendinga fyrr og síðar, þ.e. 2,34 m hár.
Sundlaugin á Dalvík er glæsilegt mannvirki og sannkallaður unaðsreitur fyrir unga sem aldna. Þar er auk 25 m langrar keppnislaugar að finna úrvals barnalaug þar sem börnin geta leikið sér á meðan foreldrarnir dorma áhyggjulausir í heitum pottum umhverfis eða sóla sig á bakkanum þegar vel viðrar. 7 km fjarlægð frá Dalvík er 9 holu golfvöllur sem nefnist Arnarholtsvöllur.
Hægt er að fara í hvalaskoðunarferðir út frá Dalvík og eru þær reglulegar yfir sumartímann. Sjaldnast þarf að fara langt út á Eyjafjörðinn til að sjá hvali af ýmsum tegundum en helst eru það hnúfubakar, höfrungar, hnísur, hrefnur og háhyrningar sem gleðja augað. Þá njóta miðnætursólarferðir á vorin og fyrri hluta sumars alltaf mikilla vinsælda ferðafólks. Einnig er boðið upp á stangveiði í Svarfaðardalsá.
Sjávarútvegur, fiskvinnsla og annað tengt sjávarútvegi skipar öndvegissess á Dalvík en auk þess eru ýmis önnur öflug fyrirtæki. Á Dalvík er hægt að leigja bæði kanó og báta.
Hestamennska á miklu fylgi að fagna í Dalvíkurbyggð. Í Hringholti er stærsta hesthús á Íslandi og þar er hægt að fá leigða hesta og meðreiðarsveina í lengri eða skemmri hestaferðir. Einnig er að finna einhver bestu berjalönd landsins í Dalvíkurbyggð. Á haustin er Böggvisstaðafjall fyrir ofan Dalvík rautt af berjalyngi.
Fyrir vetrargesti, þá er eitt besta skíðasvæði á landinu einmitt í Böggvisstaðafjalli. Hér má finna brekkur við allra hæfi. Tvær skíðalyftur teyja sig nánast neðan úr þéttbýlinu upp í 2,50 m. hæð þar sem hægt er að velja um samfelldar brekkur hvort heldur er fyrir ofurhuga á snjóbrettum eða skíðamenn sem fara vilja hægar í sakirnar og njóta stórbrotins útsýnis yfir djúpbláan Eyjafjörðinn.
Á sjómannadaginn, í byrjun júní eru jafnan hátíðarhöld á Dalvík. Þá reyna áhafnir togara og starfsmenn fyrirtækja tengdum sjávarútvegi með sér í kappróðri, reiptogi, stakkasundi og fleiri hreystibrögðum og svo er slegið upp balli um kvöldið. Fiskidagurinn mikli er haldinn helgina eftir verslunarmannahelgi í ágúst hvert ár og er þar gestum og gangandi boðið til heljarinnar fiskiveislu þeim að kostnaðarlausu ásamt fjölbreyttri skemmtidagskrá. Það er án efa dagur sem enginn má missa af!
Tröllskagi
Fjalllendi Tröllaskagans er að margra dómi ein mikilfenglegasta útivistarparadís landsins. Svarfaðardalur liggur mitt í þessum fjallaklasa og þaðan liggja fjallvegir til allra átta; yfir í Þorvaldsdal og Hörgárdal, vestur til Skagafjarðar út í Fljót og yfir í Ólafsfjörð. Hér má finna gönguleiðir við allra hæfi allan ársins hring. Fyrir fjallgöngumenn eru fjallatindar af öllum stærðum og gerðum. Fyrir þá sem frekar kjósa styttri göngutúra má benda á stikaðar gönguleiðir um Friðland Svarfdæla eða léttari fjallgöngur upp að hinum dýrðlegu fjallavötnum Skeiðsvatni og Nykurtjörn. Á þessu víðáttumikla landflæmi skiptast á þurrir árbakkar og blautar mýrar með stararflóum, síkjum og gróðursælum seftjörnum. Þetta náttúrufar skapar kjörlendi fyrir fjölmargar fuglategundir sem eiga hér varplönd sín; vissara er göngumönnum að vera í vaðstígvélum á þeim slóðum.