Fosshótel og Inns of Iceland
|

|
Fosshótel Húsavík
Ketilsbraut 22,
640 Húsavík
Sími 464 1220,
Fax 464 2161
Moby Dick Pub: Sími 464 1003 |
|
Gistu í hjarta Húsavíkur |
Fosshótel Húsavík er vinalegt og vel búið, notalegt 3ja stjörnu ferðamannahótel. Hótelið er í hjarta Húsavíkur og í göngufæri við höfnina.
Á hótelinu eru 70 herbergi með eftirfarandi tegundum herbergja:
Á hótelinu er rekinn veitingastaður og bar. Einnig er móttakan opin allan sólarhringinn og við hana er hægt að fá aðgang að interneti. Í húsinu eru sérhönnuð herbergi fyrir fatlaða og einnig er lyfta.
Ráðstefnuaðstaða fyrir allt að 300 manns er í boði. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Innréttingar hótelsins eru byggðar á hvalaþema sem er í formi mynda, málverka, skúlptúra og stóru safni hvalafrímerkja. Barinn nefnist Moby Dick Pub og byggist á hinni frægu sögu um hvíta hvalinn Moby Dick. Þar er að finna sér hönnuð húsgögn, svo sem hvala-barstóla og árabáta-borð. Moby Dick Pub er vinsæll til kokteilboða og einnig er boðið upp á mismunandi tónlistarþemakvöld.
|
Fjölbreytileg afþreyging í Húsavík |
Húsavík er heillandi bær. Við hann og í næsta nágrenni er ýmis afþreying í boði. Í bænum fyrirfinnast meðal annars góðir veitingastaðir, verslanir, söfn og sundlaug. Hægt er að fara í golf, á kajak, í útreiðar- og göngutúra eða veiðiferðir og þegar vetrar á skíði eða í snjósleðaferðir, svo eitthvað sé nefnt. Á Húsavík er að finna hvalasafn sem skartar sýningu sem er alhliða fræðsla um hafstrauma, lífríki sjávar og líffræði hvalanna.
Húsavík stendur við Skjálfandaflóa og þess má geta að betri aðstæður til hvalaskoðunar eru vandfundnar. Það er því ekki að ástæðulausu að á síðustu árum hefur bænum áskotnast viðurnefnið "höfuðborg hvalaskoðunar í Evrópu". Frá Húsavík er upplagt að leggja í dagsferðir til Mývatns, að Dettifossi eða í Ásbyrgi.
Athugaðu verðið fyrir Fosshótel Húsavík.
Afþreying á Húsavík
|
|
|
|
|
 |
|
Sendu starfsfólki Fosshótela tölvupóst varðandi frekari upplýsingar um Fosshótel Húsavík . |

Þú ert hér: Forsíða > Fosshótel Húsavík
|
|