Komudagur:
Fjöldi gistinátta:
Fjöldi í herbergi:
Fullorðnir :
Yngri en 12 ára :
IATA númer:
   
Stjörnugjöf Ferðamálastofu

Fosshótel Reykholt

320 Reykholt í Borgarfirði
Sími 435 1260, Fax 435 1206

myndasafn
 

Heilsusetur og ráðstefnuhótel

Fosshótel Reykholt er menningartengt 3ja stjörnu ferðamannahótel sem byggir á þríþættu þema: norrænni goðafræði, íslenskum bókmenntum og klassískri tónlist. Hótelið var nýlega enduropnað eftir víðtækar breytingar á húsnæðinu. Þar er móttaka, veitingastaðurinn Ásgarður, barinn Urðarbrunnur, bókstofa, internethorn, heitir pottar, tunglstofa, heilsusetur og frítt bílastæði.
Sérstaða hótelsins er heilsusetrið sem byggist á afslöppun og endurnæringu á líkama og sál. Vegleg ráðstefnuaðstaða er í boði fyrir allt að 150 manns. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Reykholti:

Fosshótel Reykholt er upplagt fyrir gesti sem vilja slaka á í sveitasælunni, njóta lesturs og skrifta og hafa áhuga á að dýpka skilning sinn á íslenskum menningararfi. Aðeins tæplega 90 mín keyrsla er frá Reykjavík í Reykholt.

Hugleiðir stendur fyrir vönduðum helgarnámskeiðum fyrir vandláta. Eru þetta námskeið um ævi og störf Snorra Sturlusonar, námskeið í leikrænni tjáningu og svo námskeið í jóga. Frekari upplýsingar eru að finna á vefsíðu Hugleiða.

 

Umhverfi Reykholts

Á árunum 1206 – 1241 bjó Snorri Sturluson í Reykholti. Óhætt er að fullyrða að Snorra sé oftast minnst sem eins mesta fræðimanns og skálds Íslandssögunnar. Reykholt er vel þess virði að sækja heim. Þar má sjá merkar fornminjar sem tengjast búsetu Snorra Sturlusonar, til dæmis Snorralaug og Snorragöng. Fyrir framan hinn gamla héraðsskóla sem Guðjón Samúelsson, fyrrverandi húsameistari ríkissins, teiknaði stendur stytta af Snorra eftir hinn merka, norska listamann Gustav Vigeland. Í Reykholti eru tvær kirkjur, mismunandi í aldri og útliti. Innan veggja þeirrar yngri er starfrækt Snorrastofa, rannsóknarstofnun í miðaldarfræðum sem hefur meðal annars umsjón með sýningum sem settar eru upp og annast tónleikahald í Reykholtskirkju og Reykholtshátíð. Að auki stendur Þjóðminjasafn Íslands fyrir fornleifarannsóknum á svæðinu. Skammt er frá Reykholti að helstu náttúruperlum Borgarfjarðar og ber þá helst að nefna Barnafoss og Hraunfossa að ógleymdum Deildartunguhver, aflmesta hver í Evrópu. Stutt er í Húsafell, (um 30 mínútna akstur) en þar er hægt að nýta sér sundlaug, golfaðstöðu, leikvöll og einnig er boðið upp á hestaferðir. Í Borgarnesi eru menningartengd svæði svo sem Landnámssetrið. Hvanneyri er í um 20 akstursfjarlægð frá Reykholti en þar er starfræktur Landbúnaðarháskóli Íslands ásamt Búvélasafni Íslands.

Athugaðu verðið fyrir Fosshótel Reykholt.

Upplýsingar um Ráðstefnu- og fundaraðstöðu á Fosshóteli Reykholti

Kíkið á nýja vefsíðu heilsu og menningarseturs á www.wellnessiceland.is

bóka

Sendu starfsfólki Fosshótela tölvupóst varðandi frekari upplýsingar um Fosshótel Reykholt .

 

Þú ert hér: Forsíða > Fosshótel Reykholt

FOSSHÓTEL · SIGTÚN 38 · 105 REYKJAVÍK · ÍSLAND · TEL +354 562 4000 · FAX +354 562 4001 · EMAIL: bokun@fosshotel.is