Komudagur:
Fjöldi gistinátta:
Fjöldi í herbergi:
Fullorðnir :
Yngri en 12 ára :
IATA númer:
   

Fosshótel Suðurgata

Suðurgata 121, 101 Reykjavík
Sími 562 4018, Fax (+354) 562 4001

myndasafn
 

Fosshótel miðsvæðis í Reykjavík

Fosshótel Suðurgata er þægilegt 2ja stjörnu hótel. Það er staðsett á frábærum stað nálægt miðbænum, Reykjavíkurflugvelli, Þjóðminjasafninu og Háskóla Íslands. Margar skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu; meðfram sjónum, í Öskjuhlíðina, upp í Perlu og í Nauthólsvíkina svo eitthvað sé nefnt.

Hótelið er opið á sumrin, frá 03.06 – 23.08 en á veturna er húsnæðið nýtt sem heimavist. Fosshótel Suðurgata var byggt árið 1999 og hótelið býður upp á einfalda, praktíska gistingu með 42 stórum herbergjum (28-30m ² ).

Hentug hótelgisting fyrir fjölskyldunaÖll herbergin eru með sjónvarpi og svölum eða verönd. Helmingur herbergja hótelsins hefur glæsilegt sjávarútsýni og frá hinum helmingnum blasir við grasi gróin náttúran. Þarna er ró og næði. Hótelið og staðsetning þess eru mjög fjölskylduvæn.

Í boði á fyrstu hæð hótelsins eru sérstök fjölskylduherbergi þar sem þemað er fjölskyldan og börnin. Þessum herbergjum fylgir verönd sem gefur krökkunum meira frelsi til að leika sér úti undir berum himni.

Á hótelinu er lítill morgunverðarsalur, lyfta og bílastæði.


Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði. Boðið er upp á að leigja áhöld í eldhúsið fyrir þá sem þess óska.


Umhverfið

Í Reykjavík er að finna aragrúa safna, veitingahúsa, leikhúsa og iðandi næturlíf. Menning af öllum toga er í seilingarfjarlægð frá Fosshótel Suðurgötu. Stutt er í verslanir á Laugarveginum og þegar pokarnir fyllast er ekkert mál að skutla þeim inn á hótelherbergi og halda svo áfram að versla.

Hver hefur ekki gaman af að gleðja börnin og rækta barnið í sjálfum sér? Heimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðin, að Reykjavíkurtjörn og í Nauthólsvík er uppskrift að skemmtilegum degi fyrir alla.

Fyrir þá sem þurfa á fund eða ráðstefnu og vilja nota tímann vel eru Fosshótelin í Reykjavík góður kostur. Helstu viðskipta- og fjármálafyrirtæki landsins eru í nálægð við Fosshótelin í Reykjavík, svo ekki þarf að eyða dýrmætum tíma í umferðinni.

Það er líka hægt að slaka á í Reykjavík. Gestir geta látið fara vel um sig inni á notalegum hótelherbergjum, rölt á veitingastað eða kaffihús og horft á fjölbreytilegt og litríkt mannlíf blómstra.

Athugaðu verðið fyrir Fosshótel Suðurgötu.

bóka

Sendu starfsfólki Fosshótela tölvupóst varðandi frekari upplýsingar um Fosshótel Suðurgata.

 

Þú ert hér: Forsíða > Fosshótel Suðurgata

FOSSHÓTEL · SIGTÚN 38 · 105 REYKJAVÍK · ÍSLAND · TEL +354 562 4000 · FAX +354 562 4001 · EMAIL: bokun@fosshotel.is