Fosshótel Reykholt er fyrsta menningartengda hótelið á Íslandi og tengist norrænni goðafræði, íslenskum bókmenntum og sígildri tónlist. Í heimi sem stundum snýst svo hratt að maðurinn missir áttir og jafnvægi þarf oft ekki annað en að hægja ferðina, anda að sér fersku lofti og láta hugann reika við fallega tónlist til að róa hugann, öðlast nýja yfirsýn og andlegt jafnvægi. Sígildir tónar sameinast nýjum skilningi og vellíðan sem grundvallast af streitulosun, slökun, endurnýjun orkunnar og heilbrigðri næringu.