Um okkur
Fosshótel státar af 9 hótelum hringinn í kringum landið, í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Fosshótel og starfsmenn leggja metnað sinn í að skapa vinalegt og afslappað andrúmsloft ásamt því að bjóða upp á fjölbreytta og góða þjónustu.
Fosshótelin í kringum landið bjóða öll upp á gistingu í upp á búnum rúmum í herbergjum með baði og er morgunverður alltaf innifalinn.
Nokkur hótel bjóða upp á herbergi án baðs. Fosshótelin eru reyklaus hótel.
Hótelin 9 eru ýmist heilsárshótel eða sumarhótel. Tvö Fosshótel eru í miðbæ Reykjavíkur, Fosshótel Baron og Fosshótel Lind sem meðal annars eru bæði með nýuppgerða morgunverðarsali.
Beint frá býli
Boðið er upp á skemmtilega og fjölbreytta matseðla en við leggjum mikla áherslu á að vinna með ferskt hráefni úr sveitunum og sjónum í nágrenni hótelanna. Við vinnum saman með bændum og kaupum sem mest beint frá býli. Það má því láta leika við bragðlaukana á hótelum okkar.
Markmiðið er, ásamt því að ferðast hringinn í kringum landið með Fosshótelum, að mögulegt sé að gæða sér á mat úr fyrsta flokks hráefni sem landið okkar býður upp á.
AðalskrifstofaHér er að finna upplýsingar um starfsfólk aðalskrifstof og hótelstjóra.
Hér má sjá þau störf sem í boði eru á Fosshótelum á hverjum tíma.
Hér má nálgast bæklinginn okkar í PDF formati.


