Móttakan á Fosshótel Lind

Við erum að leita að hressum einstaklingum í móttökuna hjá okkur.

Fosshótel Lind er 3ja stjörnu hótel í miðbæ Reykjavíkur. Í vetur var opnaður þar nýr veitingastaður sem ber nafnið ConFusion Restaurant.

Hótelið er með 77 herbergi, glæsilegan morgunverðarsal og veitingastað.

Það er heilsárshótel og háannar tími er frá maí – september.

Móttakan er móðurstöð hótelsins. Móttakan tekur vel á móti gestunum og aðstoðar þá í öllu. Það fær allar upplýsingar og kemur þeim áfram. Enginn dagur er eins sem gerir starfið skemmtilegt.

Ert þú sá sem passar í hópinn hjá okkur?

Móttaka (2-3)

Starfstími er frá enda maí fram til enda ágústs mánaðar.

Hæfniskröfur:

-          20 ára eða eldri.

-          Góð tungumálakunnátta. Íslenska og enska er skilyrði. Þriðja tungumál er kostur.

-          Þekking á Navision hótelkerfi er kostur en ekki nauðsyn.

-          Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, góð þjónustulund, góðir samskiptahæfileikar ásamt því að geta unnið vel með öðrum. Getur unnið undir álagi.

-          Reynsla af hótel eða móttökustörfum er kostur.

 

Endilega sendið umsókn og fyrirspurnir á Ernu Dís hótelstjóra á ernadis@fosshotel.is

eða hringið í síma 562 3350.

INSPIRED BY ICELAND